Endurbætur á bílskúr í stúdíó
Unnið var að yfirborðsviðgerðum og múrviðgerðum á útveggjum bílskúrs sem verið er að breyta í stúdíó.
Fyrst voru veggfletir slípaðir til að fjarlægja laust og ótraust yfirborð. Að því loknu voru allar skemmdir og ójöfnur lagfærðar með steiningarlími til að styrkja og jafna undirlagið.
Að lokum voru veggirnir pússaðir til að ná fram sléttri, jafnri og vandaðri áferð, tilbúinni fyrir frekari yfirborðsfrágang.
